Áratugareynsla af innheimtu bóta
Ef þú færð ekki bætur greiðir þú enga þóknun
Slys og skaðabætur
Hjá okkur er tekið vel á móti viðskiptavinum og við erum sérhæfð í innheimtu bóta. Áhersla er lögð á persónulega þjónustu, heiðarleika og fagmennsku.
Engin þóknun nema árangur náist
Við bjóðum upp á ókeypis viðtal þar sem farið er yfir málið og metið hvort ástæða sé til frekari aðgerða. Þú greiðir ekki þóknun nema árangur náist í málinu og tekur þannig enga fjárhagslega áhættu af því að hafa samband.
Ferlið
Þegar tjón hefur átt sér stað getur verið flókið og tímafrekt að afla þeirra upplýsinga sem nauðsynlegar eru til undirbúnings bótakröfu. Við sjáum um ferlið fyrir þína hönd, tilkynnum tjónið, öflum gagna, eigum í samskiptum við tryggingafélög eða aðra bótaskylda aðila og komum að lokum að matsferli og uppgjöri bóta. Viðskiptavinir okkar fá reglulega upplýsingar um stöðu málsins, á meðan á því stendur, og geta haft samband hvenær sem er ef spurningar vakna.