Ábyrgðaraðili

Grímur lögmannsstofa ehf., kt. 580917-1190, Hlíðasmára 9, 201 Kópavogi, sem rekur Slys og skaðabætur, er ábyrgðaraðili þeirrar vinnslu persónuupplýsinga sem fer fram á vefnum www.slysogskadabaetur.is og í tengslum við þjónustu stofunnar. Fyrirspurnum um persónuvernd má beina í síma 454 4555 eða á netfangið slysogskadabaetur@slysogskadabaetur.is.

Hvaða upplýsingum söfnum við?

Ef þú samþykkir notar vefurinn Google Analytics til að telja heimsóknir og sjá hvaða síður eru skoðaðar. Google Analytics setur þá vafrakökurnar _ga og _ga_* (gilda í allt að tvö ár) og skráir meðal annars hvaða síður eru skoðaðar, hvaðan heimsóknin kemur, gerð tækis og vafra og áætlaða staðsetningu (land og borg). IP-tölur eru ekki vistaðar. Ef þú hafnar eru engar vafrakökur settar og engar upplýsingar sendar til Google. Þú getur breytt vali þínu hvenær sem er með hlekknum „Vafrakökur“ neðst á hverri síðu.

Ef þú sendir okkur fyrirspurn í gegnum formið á vefnum, með tölvupósti eða símleiðis vinnum við þær upplýsingar sem þú lætur okkur í té: nafn, símanúmer, netfang og lýsingu á slysinu. Ef við tökum mál þitt að okkur kunnum við jafnframt að vinna frekari upplýsingar sem nauðsynlegar eru við rekstur málsins, þar á meðal heilsufarsupplýsingar og fjárhagsupplýsingar.

Tilgangur og lagagrundvöllur vinnslu

Upplýsingar úr fyrirspurnum eru eingöngu notaðar til að svara erindi þínu og meta mál þitt. Sú vinnsla byggist á samþykki þínu og á lögmætum hagsmunum af því að svara erindum sem okkur berast.

Vefgreining með Google Analytics byggist eingöngu á samþykki þínu og er notuð til að bæta vefinn. Gögn úr vefgreiningu eru varðveitt í Google Analytics í allt að 14 mánuði.

Ef þú verður viðskiptavinur stofunnar byggist vinnslan á samningi um lögmannsþjónustu og á lagaskyldum sem hvíla á lögmönnum, meðal annars samkvæmt lögum um lögmenn nr. 77/1998 og lögum um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga nr. 90/2018.

Varðveislutími

Fyrirspurnum sem ekki leiða til viðskipta er eytt innan tólf mánaða. Gögn í málum sem stofan tekur að sér eru varðveitt svo lengi sem nauðsynlegt er vegna reksturs málsins og í samræmi við skyldur lögmanna um varðveislu málsgagna og reglur um fyrningu ábyrgðar.

Miðlun til þriðju aðila

Við seljum aldrei persónuupplýsingar og miðlum þeim ekki til þriðju aðila nema það sé nauðsynlegt vegna reksturs máls þíns — til dæmis til tryggingafélaga, Sjúkratrygginga Íslands, matsmanna eða dómstóla — eða okkur sé það skylt samkvæmt lögum.

Fyrirspurnir sem sendar eru í gegnum form vefsins berast okkur um þjónustu hýsingaraðila vefsins og póstþjónustu sem kemur þeim í pósthólf okkar. Báðir starfa sem vinnsluaðilar samkvæmt vinnslusamningi.

Ef þú samþykkir vefgreiningu vinnur Google Ireland Ltd. upplýsingarnar fyrir okkar hönd sem vinnsluaðili. Þær kunna að vera fluttar til Bandaríkjanna, en Google er vottað samkvæmt gagnaverndarramma ESB og Bandaríkjanna (EU-US Data Privacy Framework).

Réttindi þín

Þú átt rétt á að fá upplýsingar um þá vinnslu sem fer fram um þig, fá aðgang að upplýsingunum, fá þær leiðréttar eða þeim eytt, takmarka vinnslu og andmæla henni, auk réttar til að flytja gögn til annars aðila eftir því sem lög heimila. Þar sem vinnsla byggist á samþykki getur þú afturkallað það hvenær sem er.

Ef þú telur að vinnsla okkar samræmist ekki lögum getur þú beint kvörtun til Persónuverndar, sjá personuvernd.is.

Öryggi

Við gætum þagnarskyldu lögmanna um öll mál og beitum viðeigandi tæknilegum og skipulagslegum ráðstöfunum til að vernda persónuupplýsingar gegn óheimilum aðgangi, breytingum eða eyðingu.